29.7.2008 | 23:11
Hræðslan komin aftur
Í gær fékk ég ofsakvíðakast sem ég hef ekki fengið mjög lengi. Ég vissi ekki hvað ég átti að gera, mig langaði mest að hlaupa inná sjúkrahús og fá bara að vera þar. En að fenginni reynslu vissi ég að það myndi ekki ganga allt of stórt batterí til þess. Ég þurfti að taka á öllu mínu til að brotna ekki, og ég hugsaði með mér að allt væri að byrja aftur, allt sem mér hafði áunnist var að hrynja af því að ég virðist ekki einu sinni höndla að lifa bara hinu einfalda lífi. En ég er svo vön að leika að ég lék mig í gegnum kvíðakastið, ég þurfti að fara til sjúkraþjálfara á sama tíma og einhvernveginn komst ég í gegnum þetta. Ég bara ætla að trúa því að þetta verði allt í lagi.
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.