1.9.2008 | 00:49
Karlmenn
Ég hef oft velt því fyrir mér í nauðgunar-og misnotkunarmálum, af hverju ætli karlmenn kæri sjaldan (hef ekki neinar tölur) nauðgun og misnotkun. Ég þekki marga karlmenn sem hafa lent í því að vera nauðgað af öðrum karlmönnum, oft á djamminu og líka vaknað með konu ofan á sér eftir að hafa sofnað fyllerísdauða. Reyndar finnst mörgum það voða fyndið, en ef kona vaknar við sömu aðstæður er horft mun alvarlegri augum á það. Ég held að þeir karlmenn sem ég þekki séu ekkert einsdæmi, en einhvernvegin virðast þeir fara öðruvísi með þetta en konur. Ég var sjálf misnotuð í mörg ár og lenti í hrottalegri nauðgun þegar ég var yngri og hef oft velt hinum ýmsum hliðum á þessum málum fyrir mér. Það er ekki til nein ein góð lausn, þær hafa allar galla mismikla, en auðvitað er sönnunarbyrðin erfið í þessum málum, því oft eru þetta bara orð á móti orði. Ég held að þetta hræðilega mein eigi sér svo djúpar rætur að það verður hvorki leyst með fleiri eða færri kærum eða betra eða öðruvísi réttarkerfi.
Kærum fjölgar, dómum ekki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ætli ástæðan sé ekki sú að karlmenn upplifi mun meiri skömm en konur og að þær fái almennt meiri stuðning eins og stígamót og ýmislegt annað.
Kveðja Skattborgari.
Skattborgari, 1.9.2008 kl. 01:12
Sæl arna
Ég held að þetta með skömmina sé haldbær skýring, þó örugglega sér aðrar skýringar sem eru trúverðugri.
Þarft innlegg hjá þér í þessa miður skemmtilega reynslu Kvenna og karla.
Heyrumst.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 1.9.2008 kl. 01:39
Sæl kæra frænka.
Hefur þú lesið bloggið mitt: "Frásögn Rósu" sem ég setti á netið í byrjun ágúst. Því miður þekki ég líka til þess að karlmenn hafi orðið fyrir nauðgun. Annar var bara 11 ára en hinn orðinn fullorðinn maður. Þessi reynsla hafði afdrifrík áhrif á lif beggja.
Það er ekkert skrýtið að þú gangir ekki heil til skógar eftir þessa viðurstyggilegu lífsreynslu.
Guð veri með þér, styrki þig og lækni öll þín mein.
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 1.9.2008 kl. 11:18
Brynja skordal, 2.9.2008 kl. 13:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.